14. fundur
utanríkismálanefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 12. desember 2022 kl. 09:30


Mætt:

Njáll Trausti Friðbertsson (NTF) 1. varaformaður, kl. 09:30
Logi Einarsson (LE) 2. varaformaður, kl. 09:30
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 09:30
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ), kl. 09:30
Jakob Frímann Magnússon (JFM), kl. 09:30
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 09:30
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:30
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:30

Birgir Þórarinsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Stígur Stefánsson

1983. fundur utanríkismálanefndar.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:33
Fundargerð 13. fundar var samþykkt.

2) 487. mál - þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland Kl. 09:34
Gestir fundarins voru Björn Bjarnason fv. ráðherra, Baldur Þórhallsson frá Háskóla Íslands og Friðrik Jónsson. Gestirnir fóru yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

Kveðið var á um trúnað á umfjölluninni sbr. 24. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991.

3) Önnur mál Kl. 11:10
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:10